Heiðskýrar =)

09.12.2008 00:20:37 / ljoskuskapur

Læra eða blogga?

Hata að vera í prófum!!! kem mér bara alls ekki til þess að læra fyrir þau!
fyrsta sem maður hugsar þegar prófin byrja er demid hefði átt að fylgjast með í tímum ;/ þá þyrfti ég ekki að læra alla bókina á einum degi t.d. núna í líffræði og ég er ekki að koma mér til þess að læra þetta!   líka þegar maður er að skoða kafla prófin þá finnst mér ég kunna þetta allt en kann það svo bara alls ekki í prófinu!!:^)
get ekki beðið eftir föstudeginum þá er ég búin í prófum og þá taka 2 vinnur við ;) verður allt kreisí að gera til 24 og þá fer ég loksins í jólafrí til 1 janúar!!
ættla að kíkja á hornarfjörð í jólafríinu :)  hef ekkert látið sjá mig síðan í sumar! ættlaði að vera geeeðveikt dugleg að koma á höfn í vetur en gafst því miður ekki tími í það, voru alltof fáar helgar í þessum vetri! en fullt af böllum samt :)
ættlaði reyndar að kíkja þarna eina helgi og fékk frí í vinnuni til þess en svo leist mér bara betur á snjóinn á akureyri og skellti mér smá á bretti!! sem var geðveikt :D legðum okkur þessa fínu íbúð þarna og vorum svo bara uppi fjalli frá 11 - 5.. en ég verð að fara aftur til akureyrar því ég fór ekki á sjallan,pantaði ekki kók í bauk,fékk mér ekki pulsu! en ég fór á greifan!

hmm, já svo er það eitt! hvar fæ ég gistingu á höfn milli jóla og nýárs? :) nenni helst ekki að sofa í bílnum!!  


Svona eru helgarnar búnar að líta út hjá okkur tveimur! þótt Guðrún hafi kannski náða að toppa mig aðeins mikið :)


Svo er maður orðin svona í enda kvöldsins! og ég búin að vera mis hress svona uppá síðkastið hehe!

En annars bara búið að vera geðveikt gaman í skólanum þessa önn og ég held ég sé eina ferðina enn hætt við að skipta um skóla ég bara tími því ekki :P




» 6 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 16:25:57 / ljoskuskapur

...

Þjóninn: Jæja, í dag er ég með reykta tungu, steikta lifur, nýru í kássu og grísalappir.
Gestur:  Ég var ekki að spyrja um heilsufar þitt.

Hoho


Smáauglýsing.

Bolabítur til sölu. Borðar hvað sem er. Hefur mjög gaman af börnum.



hihi




» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 10:48:12 / solin

Og allir saman nú:

Góðan daginn frú mín góð
ég ætla að syngja fyrir þig ljóð
má ekki selja þér pappír og berjaljós - beeeerjaljjjjjjóóóóóóóósssss

ÉG er að koma í bæinn gamlan mín, til að syngja fyrir þig ljóð heheh

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2008 12:43:40 / ljoskuskapur

-sigurbjörg-


Í sveitinni

Það var eitt sinn ljóska sem var orðin þreytt á ljóskubröndurum og vildi helst koma sér úr þessum minnihlutahóp.Hún ákvað því að lita á sér hárið brúnt og koma sér þannig í hóp þeirra sem tekið er mark á.Eina helgi í ágúst fór hún í bíltúr uppí sveit.Hún var ekki komin langt þegar hún sá féhirði smala fjöldann allan af kindum. Verandi dolfallin aðdáandi fjórfætlinga stoppaði hún bílinn og gaf sig á tal við féhirðinn.

Eftir nokkurt smátal spurði hún hirðinn hvort að hún mætti eiga eina kind ef hún gæti giskað á hversu margar kindur hirðirinn var með.Hirðirinn var viss í sinni sök um að það gæti hún aldrei og tók áskoruninni."Ljóskan"okkar hugsaði sig vel um og að lokum kom hún með töluna 294.

Hirðirinn trúði ekki sínum eigin eyrum því að það var akkúrat fjöldi kindanna. En vegna þess að hann var heiðarlegur að eindæmum leyfði hann henni að velja eina kind."Ljóskan"tók sér góðan tíma en að lokum valdi hún eina sem var mun líflegri en allar hinar.

Hirðirinn leit á hana og spurði: "Ef ég get giskað á rétta háralit þinn,má ég þá fá hundinn minn aftur?".......



   - Langt síðan það hefur verið gert einthvað hér!

Allavega þá er sumarið liðið það var nú kannski aðeins of fljótt að líða ?? En samt var þetta mjög skemmtilegt sumar
ég skellti mér heim á höfn þegar skólinn kláraðist og byrjaði að vinna á smyrlabjörgum sem var frábært alltaf gaman að koma í sveitina og alltaf svo mikið stuð í vinnuni þarna ;)

Ég byrjaði á því að taka eitt svona létt djamm þarna þegar ég kom ættlaði á ball á víkini en ég kemst aldrei inn svo það fór úti það að vera fyrir utan að fíflast en var samt mjög gaman :)

Svo voru ferðarnar á milli smyrlabjarga og hafnar ófáar í sumar alltaf að fara að heimsækja dísu mína, og ekki voru rúntarnir færri í sumar, Víð Guðrún duglegar að taka vel á því fram eftir nóttu ;)

Svo skall Humarhátíðin á sem var bara mjög skemmtileg, maður nær alltaf að rugla jafn mikið á henni!
Svo voru nokkur djömm í júlí var í fríi allar helgar :) Skellti mér á Egilstaði þar sem planið var að skella sér á ball með Sálinni með Heiðu,Guðrúnu,Sólveigu og Hólmari en þar sem ég er oft mjög dugleg að skipta um skoðanir á ákveð mig sjaldan fyrren svona sekúntu áður en ég fer að gera einthvað! Svo ég lét krakkana skuttla mér á borgafjörð - eystri til að ég gæti mætt á bræðsluna sem var alveg magnað gaman að fara á útihátíð ekki með tjald og ekki með far heim né neitt en það reddast alltaf enda fer maður ekkert að sofa á svona hátíðum... 

Svo var ég að vinna verslunarmannahelgina en ég skellti mér á klaustur Sunnudagskvöldið með Bryndísi og Svenna fórum og hittum krakkana þar og svo var skellt sér á frábært ball :) og keyrt heim mánudagsmorgunin sem var kannski ekki alveg jafn gaman en ég meina samt alltaf stuð í því, fara beint á höfn heim til Bryndísar og sofa það sem eftir er dagsins :)
Og svo redda sér fari útí sveit..maður lendir stundum í þeim vandræðum en það reddast ;)

Svo var Jökulsárdæmið helgina eftir þá var ég svo mikill beiler og félagsskítur að ég beilaði á öllum stelpunum sem hittust heima hjá þórhildi og á meðan svaf ég yfir mig útí sveit hehe... skellti mér ásamt helga á skálafell og vorum þar í svona kannski korter, þá drifum við okkur útá jökulsárlón og að venju þá hafði ég mikið að segja þegar ég hitti stelpurnar svo ég missti af miklu af sýningunni enda var mikið af bilum á billi sprengja og svona lélegt en samt gaman ;P
Svo var skellt sér á ágætis hlöðuball...  og svo einsog vanalega þá fór næsti dagur í það að kúra allan daginn hjá dísu :D alltaf jafn mikið stuð á okkur þegar við hittumst svona ;)

Svo bara sumarið búið ? :O keyrði suður í samfloti  með Jóhönnu og Ásgeiri komum við á klaustri þar sem við hittum ömmu og afa og þar var fengið sér pulsu og ís ;P aldrei verið svona lengi suður hehe ;)

en hey horfðu þið á leikinn í gær? :O ómægod sko hann var of spennandi gerði mér ferð uppi skóla til að horfa á leikinn meira spennandi að horfa þar heldur en ein heima.. en allavega maður var bara brosandi það sem efitr var dagsins... Svo leikur á morgun verður kannski sýndur á mikklatúni þá er bara um að gera að djamma í alla nótt og vera mættur þangar korter í 8..alltof dýrt að taka taxa uppi mosó og tekur sig ekki heldur, svo væri líka gaman að skella sér bara í smáralindina í náttfata party og horfa á leikinn..:D

menningarnótt í kvöld verð nú að kíkja aðeins út er búin að sjá það að það er allur hornafjörður í Reykjavík var ekki búin að vera nema svona 5 mín í smáralind og búin að mæta fullt af hornfirðingum svo mætti ég fulltfullt fleirrum...

ehm, ættlaði að fara að setja inn myndir en ég sé það núna að ég hef gleymt myndavélini í sumar og á eiginlega engar myndir :(

en hef ekkert meira að skrifa hér, held líka að þetta sé ógeðslega leiðinlegt blogg allavega nenni ég ekki að lesa þetta yfir! 
 
Farin út að kaupa mér skólabækur og fleirra stuff!


Hún Stína litla...

... er svo grönn að í hvert skipti sem hún fer niður að Tjörn kasta endurnar brauði í hana.


Fíll og mús voru á leið yfir brú.

Fíllinn: Mikið svakalega brakar í brúnni. Ég held hún sé hreinlega að detta í sundur.
Músin: Það er nú engin furða þegar við erum bæði á henni í einu.

 









» 6 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 22:56:31 / ljoskuskapur

Hún var séð sú gamla!

pissa-uti.jpg

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka.

Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.

Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni.

‘Góðan daginn væna mín’ sagði hann ‘hefur þú tekið eftir því að það eru 5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?’

Konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna.

‘Æ þakka þér fyrir væni minn’ stundi í konunni ‘Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp’

En þegar hún ætlar að leggja af stað að tína upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana.

‘Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af fimm þúsund köllum? Varstu kannski að ræna banka?’

Gamla konan brosti.

‘Nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja :

‘5000 kr. eða ég klippi hann af!’

‘Jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd’ sagði lögregluþjóninn hugsi ‘..en hvað ertu með í hinum pokanum?’‘Það eru ekki allir sem borga…’




» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 23:49:54 / ljoskuskapur

Heiða

Hún á afmæli í dag!

Hún á afmæli í dag!

Hún á afmæli hún Heeeiða!
 
Hún á afmæli í dag! veeeeei!

man ekki hvernig hitt erindið var en hún er allavega orðin 18 ára gella ;) má fara á víkina ;P Til lukku með daginn ;*

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 16:18:15 / ljoskuskapur

argarg

ohh.. var búin að blogga hér en svo ýtti ég á stroka út takkann og fór til baka á síðunni.. svo að þið verðið bara að bíða þangað til að ég nenni að blogga  næst..

Heiða                                        


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 23:39:36 / ljoskuskapur

Sumarið að koma ? =)

Já sumarið er að koma :D

Ég hef ekkert að blogga um frekar en hina dagana ;)

Eeeen um helgina fór ég bara heim og dvaldist upp í sveit á föstudeginum og hluta á laugardeginum sem var notalegt og fínt, fór svo austur og hitti hana Guðrúnu mína um kvöldið og jú hitti Bryndísi og Sigurbjörgu svo smá líka sem var fínt :)
Svo á sunnudeginum var bara farið upp í sveit og svo farið upp á jökul í boði Bjarna Skarphéðins að leika sér á sleðum, eða vorum að hjálpa honum að færa þá en fengum dágóða útsýnisferð í leiðinni sem var bara gaman, blankalogn og sól =)
Svo um kvöldið skelltum við Guðrún okkur á Rocky Horror sýninguna og var hún bara mjööög skemmtileg :D mæli með henni sko.. ;)
þá var þessi ágæta helgi búin..

Svo bara 7 kennsludagar eftir í mínum skóla og þá fara að taka við próf sem verður bara fínt þegar því er lokið, tek 4 próf minni mig og er síðasta prófið 16 maí.. Sumarið alveg að fara að koma eða það vona ég og svo bara heim að vinna.. er líka að fara til Þýskalands í júní  í faðmi fjölskyldunnar sem á eftir að verða mikið stuð =)
og mín alveg að verða 18 ára þannig að þetta sumar á eflaust eftir að verða frábært eða það verður allt reynt til að það verði þannig ;)

Var einmitt líka að koma úr einum „sveitarúnti“ með Helga Berg fórum eitthvert til Krýsuvíkar og Grindavíkur eða eitthvað.. og auðvitað malavegir þar, en hvað annað.. og ég hélt að ég væri eiginlega hætt að vera bílhrædd eeen nei aldeilis ekki maður bara var með lífið í lúkunum allan tímann sem maður var á malarveginum .. :O(A) en maður fer kannski að þroskast og hætta þessari hræðslu 8-) *hóst* hehe..

En jæja hef þetta ekki lengra að sinni :)
-Heiða Vilborg


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 23:15:56 / ljoskuskapur

böh.

 

Ekki allir hressir?

 

Hmm langt síðan það hefur einhvað verið skrifað hér á þessa síðu..

Ættla samt ekki að fara að segja frá því sem ég hef verið að gera síðan seinast þar sem það er svo ómerkilegt að ég man ekki hvað það var...

Alla vega þá keyfti ég mér snjóbretti sem ég hef reyndar ekki enþá prufað... ættla samt að reyna að fá að fara uppá vatnajökul í sumar og prufa ef það má það er að segja :P

Búin að vera alladaga á bílasölum að skoða bíla en ég bara get ekki valið mér bíl.. ;/

 

En allaveg ég var að pæla í að monta mig á því að ég var að fljúga flugvél í dag sem var svona aðeins of gaman..

það var súper og ég var skít hrædd um að
drepa mig...
fórum í boði skólans og það voru 4 í flugvélini eða flugmaðurinn og 3
krakkar og strákarnir leyfðu mér að vera frammi =) víí ég fékk að
setja flugvélina í loftið og þá togar maður bara út takka og flugvélin
fer á svaka ferð svo togar maður stýrið til sín og þá bara fór
flugvélin uppí loftið og hann kenndi mér smá þar og svo fékk ég bara
að stýra og svona gaman...
Nema ég sá ekkert yfir mælaborðið =/ en það er seinni tíma vandamál fæ
mér bara svona pullu..
en já svo var ég að fljúga og fór í láflug og mætti hinni flugvélina
fór bara geðveikt nálegt og svona :D
Svo fór hann að láta mig lenda ég var smá treg við það að lækka flugið..
En það hafðist þá ýtti ég bara stýrinu til baka og var alveg vissum að
ég myndi brotlenda á flugbrautina en flugvélin er enþá heil held ég ;)

Svo er geðveikt skrítið að stýra flugvélinni að húsinu því þá stýriru
með petölum en ekki stýrinu :P
En allavega þetta er gaaaaman

 

en hmm þetta ætti að duga í bili..
-sigurbjörgkaren-


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 20:43:37 / ljoskuskapur

SigurbjörgKaren ;)


 Sællertu!!

Fékk magnaða hugmynd núna um það að blogga..

Versta að það kom ekki önnur mögnuð hugmynd um innhaldið sem gæti verið í þessu blessaða bloggi 8-)
Er búin að reyna að blogga nokkrum sinnum en bara aldrei komist inná síðuna hélt að það væri einhvað að henni bara... komst svo að því áðan að Heiða snillingur var komin með nýtt pw og ekki alveg búin að láta mig vita :evil:

En það sem er búið að gerast síðan síðast er fullt... 

Mamma og pabbi fóru semsagt út í mánuð eða allann febrúar þannig ég bjó hérna uppi mosó ásamt Gunnari og Ásdísi annað slagið.. mjög fínt það mjög fjölbreytt fæði og svona (pizza,pizza,pizza,matur,subway,Quiznos og svona hehe)
Og svo var tekið alveg ágætlega mikið á skemmtanalífinu í þessum mánuði sem var bara of gaman.
Nenni samt ekki að fara að telja upp það sem ég gerði hvar og hvenær þannig þetta verður bara svona ;P
Bláfjöll búin að fara alveg nokkrar ferðar þangað  með Helga það er farið að verða svolítið dýrt um 5000 krónur hver ferð en ég er farin að geta staðið í lappirnar á leiðinni niður og hætt að faðma þessa snjóhrúu sem er í kanntinum á brekkunni...Seinast uppgvötuðum við að þetta fjall er stærra og fórum í rot trip um fjallið þar sem Helga frænka reyndi að drepa okkur með því að fara með okkur í allskonar brekkur sem voru mis brattar ;D 

Ég fór austur þarna aðeins í Ferbrúar og skellti mér á árshátið sem heppnaðist bara mjög vel. Get reyndar ekki sagt að skemmti atríðin hafi verið uppá sitt besta í ár frekar óæfð og langt bil á milli og svona en samt alltaf ágætis skemmtun maturinn bara nokkuð góður miða við matinn sem hefur alltaf verið á svona skólaskemmtunum :)

Svo ball með páli óskari sem var frábært dýrka þennan mann hehe ;)

Síminn minn fékk að sofa úti þessa nót í snjó og skemmtilegu veðri ég vissi samt alveg hvar hann var og fór og náði í hann um 4 leitið daginn eftir.. Ég skildi hann bara eftir uppi hafnaskóla fínt að geyma hann bara þar, eða mér fannst það ágæt hugmynd endaði samt með því að kaupa nýjan síman þar sem hinn var farinn að gefa sig hægt og rólega enda kominn tými til ég hef aldrei átt síma svona lengi einsog þennan ;)

En Takk fyrir frábæra helgi sem var þarna :D ég er sátt með hana..

Hmm svo var bara Skólinn og vinnan á sínum stað...

Svo núna í Mars er búið að gerast voða fátt skoo

Það voru starfsdagar núna í þar seinustu viku minnir mig..

Fór semsagt á miðvikudeginum í viðhaldsstöðina sem var rútuferð uppá keflavíkurflugvöll og skoða slökkvuliðið og allt svæðið sem þeir hafa fyrir æfingar og svona byrjuðum á því að fara í vopnaleit og fyrsta skiptð sem svona tæki pípir á mig þar sem ég tók bara allt mitt dót með í gegn.. ég þurfti að snúa við og tæma alla vasa og labba aftur í gegn og þá pípti bara enþá svo ég var látin afklæðast taka af mér beltið og úrið og svona vesen en þá virkaði þetta loksins og ég gat haldið þessari ferð áfram þegar ég var búin að ná að koma öllu dótinu á sinn stað aftur..

Svo var farið þaðan í viðhaldsstöðina þar sáum við þegar það var búið að rífa allt útur flugvél og verið að skifta um sæti og svona voða spennandi sko ;P

Og svo bátasafn það er nú meira ruglið að skoða uppstoppaða báta inní glerkössum

Svo var loks farið í bláalónið ástæðuna fyrir því að flesstir fóru með ;) Skellt sér ofaní og fengið sér einn sundsprett í ógeðisvatni sett drullu útum allt og svo fengið sér einn kaldan áður en maður fór aftur heim það var nú bara nokkuð gott get ég sagt ykkur :)

Svo á leiðinni heim var bara ruglað smá í fólkinu og svona :)

Svo á fimmtudaginn Fórum við Íris ásamt fleirrum í Njáluferð gaman það sátum nokkra klukkutíma í rútum og hlustuðum á kallinn tala vorum látin labba upp brekku í rigningu og roki og ég gat bara ekki gengið upp fauk næstum 2 en þegar við vorum komin á áfangastað þá var stoppað í svona 5 mínútur og hlaupið niður í rútu ég ættlaði bara að skokka þangað en meðvindurinn og brekkann gerðu það að verkum að ég komst ekki hægt og gat heldur ekki stoppað gaman það svo ég stakk bara liðið af ;)

Svo var setið smá lengur í rútu og svo um 4 fór fólkið að opna bjórana Eysteinn kennari ekki sáttur með það en gat svosem ekki breytt neinu og komum heim um 6 leitið þá fórum við heim skiptum um föt og skellt sér í “party” fórum heim til einhvers kauða sem var með í ferðinni og sötruðum þar vorum alveg 5 og fórum svo heim til Fitta þar sem voru heilir 2 eða 3 stoppuðum stutt þá var haldið niður í bæ, þar sem gáfnaljósið ég tókst að missa skilríkin=(  þannig mig vantar ný ;/

Svo var ég orðin bara góð þegar ég fór heim og var hress klukkan 9 daginn eftir á fótboltamóti.. hehe ég pantaði bara varamanna bekkinn en fór samt einusinni og snerti boltann einu sinni og liðið mitt var svo gott að það voru 4 þunnir af 7 hehe og við töpuðum öllum leikjunum okkar hehe

Svo er ég bara búin að gera hitt og þetta sem ég nenni ekki að skrifa um en það var samt allt gaman ;D

VOG  23. september - 22. október
Þú ert eilífðarstúdent. Ekki af því að þú veist ekki nóg, heldur af því þú ert svo forvitinn í hjartanu þínu. Þú eignast marga bekkjarfélaga og þið finnið verðug viðfangsefni.

Stjörnuspáin mín í dag :O jájá nú getur mamma bara haldið áfram að grenja um það að það verði enginn stúdent í fjölskyldunni minni hehe
(Skrifaði þetta í gær)

Vorkenni þér ef þú last þetta allt þar sem þetta er nákvæmlega ekki um neitt hehe :haha:

Hvað er það sem er líkt bæði fíl og fugli?

 




 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 17:10:05 / ljoskuskapur

Jahá smá blogg!

(bara gert fyrir Möggu og Dísu) ;)

En hef nákvæmlega ekkert að blogga um! en skal reyna að blogga um febrúar..

Fór austur 8 febrúar og skellti mér á blót sveitarinnar 9 feb og var það bara STUÐ :haha:
Fór austur 15 febrúar
Fór austur 22 febrúar
Fór austur 29 febrúar            ;)
Samasem hefur ekkert skemmtilegt gerst hjá mér..
Eða júúú fór á árshátið Fas sem var 22 febrúar og það var bara nokkuð gaman þótt maður hafi ekki alveg fattað skemmtiatriðin en ballið var frábært, hef sjaldan séð svona marga á dansgólfinu á Hornafirði :P
Og svo Hólmar að koma um helgina..
Og Helgi alltaf jafn pirrandi! :klikk:

oooooooog svooo geeeet ég ekki beðið eftir páskafríinu... sem er eftir 9 DAGA :D:D:D:D

Jæja stelpur mínar núna þurfið að commenta þetta ;)

-HeiðaVilborg


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 21:13:45 / ljoskuskapur

svona smá..

Langt síðan maður hefur hugað að þessari blessuðu síðu...

 

Verð að segja að Janúar er búin að vera óvenju langur að líða..

En ég er samt búin að gera fullt

 

Fór tildæmis í óvissuferð með Húsó gellunum sem var mjög gaman :D
Byrjuðum á að hittast við hallgrímskirkju og fá peysurnar sem við vorum að kaupa okkur..

Skelltum okkur svo í skautahöllina þar sem við sýndum listir okkar..

Fórum svo í Laser tag sem var geðveikt gaman, ég á eftir að fara í það aftur verð bara að taka fleirri leiki þá.. ;)
Svo fórum við heim til Bryndísr og hittum spá konu sem ég man ekki hvað heitir og hún bullaði einhvað í okkur  ;P ég trúi bara einfaldlega ekki orði af því sem svona spá konur segja..

En svo fórum við og fengum að borða kjúkling heima hjá Aldísi og vorum þar í einhverju svona smá partyi þar fólk að byrja að sötra og svona...

Fórum svo niðrí bæ ég var aðalega með henni Höllu að rölta svona á milli pöbbana ;P...

 

Svo er ég búin að vera dugleg að skella mér í bláfjöll og sína listir mínar á bretti sem eru kannski ekki mikklar ef þið sjáið einhvern vera með bretti á fótunum rúllandi niður brekkunna þá er það mjög líklega ég hehe..

En það voru samt framför í seinustu ferð þar sem ég festist aldrei í sköflunum sem eru þarna í hliðunum og mér tókst að standa allaleiðina niður í seinustu ferðinni.. mjög stolt... ;)

 

Svo er skólinn alltaf til staðar og vinnan aðrahverja helgi og alla föstudaga =)

 

Svo hélt ég kaffiboð fyrir Birnu í gær þar sem hún var í bænum ;) bakaði fullt af góðum kökum handa henni :D hún kom með boðflennur með sér mömmu sína,Heiðu,Helga,Lúcíu og Hólmar... sem var nú bara fínt annars hefðu kökurnar aldrei klárast ;)

 

Fékk líka geðveika útskriftar gjöf frá Birnu :D verð að setja mynd af henni hérna inn sem fyrst ;)

  

Svo er Margrét á leiðinni í bæinn núna  =) og svo ættlar hún að fara tíl nýja sjálands á miðvikudaginn og skilja mig eftir í ár :O en þetta verður svo gaman hjá henni.. held að ég sé að verða spenntari en hún hihihi

   

Auglýsi eftir Dell hleðslutæki sem einhver er til í að losna við... ;/ vantar nauðsinlega..

-Sigurbjörg-


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 22:10:49 / ljoskuskapur

Annáll 07' ....

   

Janúar

 ´

·        Áramótin voru haldin! Frekar slöpp að mínu mati

·        Heiða flutti í bæinn 3.Jan

·        Sigurbjörg fór til Rvk til Heiðu , og hitti þar í leiðinni Sólveigu og Bryndísi Rós þar sem eftir var farið í eftir minnilega búðarferð þar sem Heiða stjórnaði ferðinni klukkan 3 að nóttu!

·        Ég,Heiða,Sólveig og Örvar fórum á MR ball með Aldísi

·        Fórum í fyrirparty til Sæla?

·        Bryndís Rós átti afmæli 10 jan!

 

Reykjarvíkur ferðin

 

Febrúar

 

·        Heiða kom á höfn eða í sveitina 2 jan

·        Skellti sér á Þorrablót suðursveitunga

·        Hittumst allar stelpurnar úr 90 árganginum og fórum á Kaffi hornið

·        Heiða fór á skólaball með Sólveigu

·        Svo þær á skólaball í skólanum hennar Heiðu

·        Guðrún fékk bílpróf 14 feb :D

·        Kristjana fékk líka bílpróf :D

·        Söngvakeppnin var haldin á höfn

·        Opin vika í FAS

·        Heiða kom austur til að koma á Árshártíðina

·        Árshártíð Fas var haldin :)

 

 (Árshártíðinn)

 

Mars – Ágúst  (man ekki hvað gerðist í hvaða mánuði J )

·        1.Mars var lagt af stað í “rot trip” með Jóhanni,Steinunni og Þórhildi og ferðinni var haldið í bæinn til Heiðu

·        Helgina 1 – 4 Mars var sofið lítið og hitt fullt af nýju fólki ;)

·        Allir mjög veikir eftir þessa ferð ? hehe

·        Heiða fór á Árshártíð Vélstjórnar

·        Mikið Drama þar ;)

·        Ég fór einaferðina enn í bæinn

·        Heiða svaf yfir sig í bóklegabílprófið

·        Ég og Sara til spánar ásamt foreldrum mínum.

·        Við Sara með sér íbúð og skemmtum okkur bara frekar vel þarna ;)

·  Heiða kom austur í páskafrí

·  Heiða náði loks bóklegabílprófinu

·  Ég bjó til link á síðunna um þar sem hún lét inn alla vitlaysuna sem Heiða ruglaði á tímabil! Endilega skoða hann ;P

·        Heiða átti Afmæli :D

·        Héldum surprise afmælisveislu fyrir hana ;)

·        Ég flutti á smyrlabjörg

·        Þá var byrjað að vinna á fullu!

·        Ég,Heiða og Steinunn fórum í veiðiferð og urðum bensínlausar á leiðinni ;)

·        Fórum í útilegu í skaftafelli ;)
Sigurbjörg,Heiða,Sólveig,Guðrún Hólmar og Sigurbjörg

·        Skemmt sér aðeins of vel ;P

·        Heiða og Hólmar byrjuðu saman ;*

·        Mikið stuð á smyrlabjörgum

·        Strákarnir úr Malavinnsluni mættir og áttu stelpur erfitt með að einbeita sér af því að vera í vinnuni ;)

·        Mikið ráp á milli húsa um kvöldin ;P

·        Kíkt aðeins á hrossódjamm!

·        Staffa ferð á jökulsárlónið og Þórbergssetur!

·        Sigurbjörg og Heiða fóru í útilegu 5 km frá Smyrlabjörgum ;)

·        Sigurbjörg skellti sér í bæinn

·        Humarhátíðinn haldin mikið drama á smyrlabjörgum í kringum það og gaman :)

·        Jökulsárlónið og Hlöðuball – mikið drama en líka mikill stemmari ;)

·        Ég,Þórgunnur og Hrefna skelltum okkur  í Öræfin á ball þar sem voru svona 15 mans ;) en við skemmtum okkur ;P

  • Ég og Þórgunnur löbbuðum langleiðina uppá jökul
  • Laufey skuttlaði okkur uppá toppinn þegar við vorum aaalveg að verða komnar samt svona korter að keyra ;) haha þetta var klikk....

Ferðin 1-4 Mars ;)
Spánn

Heiða og allir í útilegunni ;)
September
  • Heiða fór aftur í bæinn ´
  • Ég flutti í Mosó og byrjaði í Hússtjórnarskólanum
  • Flutti á vistina þar.
  • Svo var þetta bara rólegur mánuður að mig minnir.

Október

  • Allt á fullu í skólanum
  • vorum með Foreldraboð
  • Fór út með Húsó að borða og í leikhús :)
  • Fórum á leikritið Leg ;)
  • Ég átti afæmli  :-)
  • það var skemmt sér vel það kvöld
  • Fórum nokkur í Limmósíu og svo í keilu :D
  • Margir krakkar í bænum þessa helgi og mikið trallað ;)

    Húsó gellurnar
Limmó

keilu sem gekk líka svona vel ;)
Þynkuparty
Skautahöllina ;)
og út ;)   - Þetta var svona löng afmælishelgi ;P
Nóvember
  • Fór með Húsó gellunum á Grundarfjörð á ball
  • Stuð á okkur þar ;)
  • Ég fékk loksins bílpróf
  • og var þessi mánuður rólegur að mestu leiti held ég

Desember

  • Prófin...
  • Ég útskrifaðist úr húsó sem Húsmóðir ;D heh
  • Heiða fór á höfn í jólafrí ;)
  • Ég fór að vinna alla daga á fullu ;)
  • Jól...´
  • Ég fór austur með Sólveigu B. 26 des :)
  • Margrét var hérna í bænum
  • ég fór með hana í fyrsta skipti í skautahöllina ;)
  • Hittum Aldísi
  • fórum í bíó og svo var ég að kenna henni  á menninguna ;P
  • Árgangsparty haldið í bílsklúrnum hjá Hólmari..
  • Svo ball með 60's í sindrabæ og skellt sér á víkina eftir það :)
  • Kom aftur í bæinn 29 með flugi ásamt Bryndísi Gyðu..
  • Margrét var hérna í
  • Áramótin komu svo og ég fór ekki út ;) =O
    það var klikkað veður ég sprengdi t.d. bara eina sprengju heh ;)

Peysan sem ég prjónaði í húsó
Party haldararnir
Annar í jólum hjá Hólmari
Margrét...... (sorry margrét :( )
 Til hamingju með daginn Bryndís mín ;** (nenni því miður ekki að skrifa afmælissöng til þín, skal bara syngja fyrir þig við gott tæki færi ;) )
of=50,590,442t
Hún er s.s. loksins orðin 17 ára og komin með bílpróf ;*

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 02:13:27 / ljoskuskapur

...

Já ætti maður að reyna að rita örfá orð á þessa síðu .. svona aðeins að reyna að halda henni við ..:$
En allaveganna tók ég 1 próf hérna í bænum og rest heim á Höfn og var það nú bara fínt.. segjum ekkert meir frá því ... :P en allaveganna 18 des n.k. fékk ég hringingu og sagt að ég hafi verið rekin úr skólanum.. og ég bara skildi hvorki upp né niður 8| Hélt fyrst að þetta væri bara djók.. en svo var víst ekki.. en þrátt fyrir það að hafa verið rekin úr skólanum þá náði ég sveitastyrknum góða.. :D hélt að ég myndi bara alls ekki ná honum...=/

En jólafríiið mitt var allt mjög gott.. dvaldi meira og minna hjá honum Hólmari mínum mest allan tímann nema rétt yfir aðfangadag.. en fór einstaka sinnum í heimsókn í sveitina :P

mjög ánægð með jólagjafirnir mínar, fékk 3 búsáhöld í jólagjöf.. veitir ekki af að fara að byrja að safna.. ;)

En svo var annan í jólum og Kom Sigubjörg og Sólveig austur að til okkar.. en stoppaði Sigurbjörg eitthvað stutt hér.. en árgangspartý var heima hjá Hólmari og var það bara mjög gaman skemmtilegt :) og á ballinu var ég nú ekki á  :O borgaði mig inn og var ekkert meir þar.. þar fór peningur í ekki neitt.. fattaði það þegar ég kom út í Sindrabæ að ég var ekki með pening á mér í lausu og ekki Hólmar heldur þannig ég bað lögguna um að skutla mér í hraðbanka og svo fór ég að gramsa í veskinu orðin frekar vandræðaleg útaf ég var ekki með kortið mitt heldur :$  en allt reddaðist þetta þeir buðust til að skutla mér að ná í það og fara svo með mig í hraðbankann..

en svo þegar mín var búin að vera á rúntinum með einhverjum krökkum ákvað ég að skella mér á víkina með Sibbu og fórum við inn án þess að borga.. og skemmtum okkur mjög vel þar.. en svo fór maður nú bara heim að sofa eftir það og svaf nánast fram að áramótunum ;)

En á áramótunum ætlaði ég nú á ball.. en neinei var búin að vera þar í rúman hálftíma var þa´ekki bara hent mér út.. :O mér og Guðrúnu engum öðrum.. og við ekki einu sinni að drekka né með læti .. :klikk::evil:  alveg snarklikkað fólk þarna !!! en svo voru rúntarnir okkar Sólveigar og Guðrúnar ófái .. :lol: og endanlega skemmtilegir ;) alltaf gerðist e-t skemmtilegt .. :P 

Svo bara fór ég í bæjinn með Helga á fimmtudagskvöldið síðasta og tók Hólmar með mér.. og á ég svo að mæta í skólann á miðvikudaginn að búa til stundatöfluna mína.. og svo bara að fara að byrja í skólanum...

 

og þar sem ég er ekki lengur með vinnu í joeboxer þarf ég að fara að finna mér nýja... :evil:  þar sem var talað um að ég þyfti ekki að segja upp áður en ég færi í jólafrí heldur færi bara og svo vildu þau fá mig aftur þegar ég kæmi í bæjinn í janúar.. en eitthvað var það búið að breytast þegar ég kom í bæjinn !!!!!! aaarg.. :P en ég er ekki frá því að ég sé seinheppnasta manneskja í heimi ... :S;)

En höfum þetta gott í bili..
Endilega einhver comment takk ? :)

-Heiða Vilborg ;* 


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 01:38:15 / ljoskuskapur

MYNDIRMYNDIR

Eru loksins komnar myndir úr árgangspartýinu .. :D


 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
RSS tengill
Dagsetning
28. janúar 2012
Könnun
Er síðan að meika það?





Síðast inni
Ég var síðast inni þann 9 desember