Sællertu!!
Fékk magnaða hugmynd núna um það að blogga..
Versta að það kom ekki önnur mögnuð hugmynd um innhaldið sem gæti verið í þessu blessaða bloggi 8-)
Er búin að reyna að blogga nokkrum sinnum en bara aldrei komist inná síðuna hélt að það væri einhvað að henni bara... komst svo að því áðan að Heiða snillingur var komin með nýtt pw og ekki alveg búin að láta mig vita
En það sem er búið að gerast síðan síðast er fullt...
Mamma og pabbi fóru semsagt út í mánuð eða allann febrúar þannig ég bjó hérna uppi mosó ásamt Gunnari og Ásdísi annað slagið.. mjög fínt það mjög fjölbreytt fæði og svona (pizza,pizza,pizza,matur,subway,Quiznos og svona hehe)
Og svo var tekið alveg ágætlega mikið á skemmtanalífinu í þessum mánuði sem var bara of gaman.
Nenni samt ekki að fara að telja upp það sem ég gerði hvar og hvenær þannig þetta verður bara svona ;P
Bláfjöll búin að fara alveg nokkrar ferðar þangað með Helga það er farið að verða svolítið dýrt um 5000 krónur hver ferð en ég er farin að geta staðið í lappirnar á leiðinni niður og hætt að faðma þessa snjóhrúu sem er í kanntinum á brekkunni...Seinast uppgvötuðum við að þetta fjall er stærra og fórum í rot trip um fjallið þar sem Helga frænka reyndi að drepa okkur með því að fara með okkur í allskonar brekkur sem voru mis brattar ;D
Ég fór austur þarna aðeins í Ferbrúar og skellti mér á árshátið sem heppnaðist bara mjög vel. Get reyndar ekki sagt að skemmti atríðin hafi verið uppá sitt besta í ár frekar óæfð og langt bil á milli og svona en samt alltaf ágætis skemmtun maturinn bara nokkuð góður miða við matinn sem hefur alltaf verið á svona skólaskemmtunum
Svo ball með páli óskari sem var frábært dýrka þennan mann hehe 
Síminn minn fékk að sofa úti þessa nót í snjó og skemmtilegu veðri ég vissi samt alveg hvar hann var og fór og náði í hann um 4 leitið daginn eftir.. Ég skildi hann bara eftir uppi hafnaskóla fínt að geyma hann bara þar, eða mér fannst það ágæt hugmynd endaði samt með því að kaupa nýjan síman þar sem hinn var farinn að gefa sig hægt og rólega enda kominn tými til ég hef aldrei átt síma svona lengi einsog þennan 
En Takk fyrir frábæra helgi sem var þarna
ég er sátt með hana..
Hmm svo var bara Skólinn og vinnan á sínum stað...
Svo núna í Mars er búið að gerast voða fátt skoo
Það voru starfsdagar núna í þar seinustu viku minnir mig..
Fór semsagt á miðvikudeginum í viðhaldsstöðina sem var rútuferð uppá keflavíkurflugvöll og skoða slökkvuliðið og allt svæðið sem þeir hafa fyrir æfingar og svona byrjuðum á því að fara í vopnaleit og fyrsta skiptð sem svona tæki pípir á mig þar sem ég tók bara allt mitt dót með í gegn.. ég þurfti að snúa við og tæma alla vasa og labba aftur í gegn og þá pípti bara enþá svo ég var látin afklæðast taka af mér beltið og úrið og svona vesen en þá virkaði þetta loksins og ég gat haldið þessari ferð áfram þegar ég var búin að ná að koma öllu dótinu á sinn stað aftur..
Svo var farið þaðan í viðhaldsstöðina þar sáum við þegar það var búið að rífa allt útur flugvél og verið að skifta um sæti og svona voða spennandi sko ;P
Og svo bátasafn það er nú meira ruglið að skoða uppstoppaða báta inní glerkössum
Svo var loks farið í bláalónið ástæðuna fyrir því að flesstir fóru með
Skellt sér ofaní og fengið sér einn sundsprett í ógeðisvatni sett drullu útum allt og svo fengið sér einn kaldan áður en maður fór aftur heim það var nú bara nokkuð gott get ég sagt ykkur
Svo á leiðinni heim var bara ruglað smá í fólkinu og svona 
Svo á fimmtudaginn Fórum við Íris ásamt fleirrum í Njáluferð gaman það sátum nokkra klukkutíma í rútum og hlustuðum á kallinn tala vorum látin labba upp brekku í rigningu og roki og ég gat bara ekki gengið upp fauk næstum 2 en þegar við vorum komin á áfangastað þá var stoppað í svona 5 mínútur og hlaupið niður í rútu ég ættlaði bara að skokka þangað en meðvindurinn og brekkann gerðu það að verkum að ég komst ekki hægt og gat heldur ekki stoppað gaman það svo ég stakk bara liðið af 
Svo var setið smá lengur í rútu og svo um 4 fór fólkið að opna bjórana Eysteinn kennari ekki sáttur með það en gat svosem ekki breytt neinu og komum heim um 6 leitið þá fórum við heim skiptum um föt og skellt sér í “party” fórum heim til einhvers kauða sem var með í ferðinni og sötruðum þar vorum alveg 5 og fórum svo heim til Fitta þar sem voru heilir 2 eða 3 stoppuðum stutt þá var haldið niður í bæ, þar sem gáfnaljósið ég tókst að missa skilríkin=( þannig mig vantar ný ;/
Svo var ég orðin bara góð þegar ég fór heim og var hress klukkan 9 daginn eftir á fótboltamóti.. hehe ég pantaði bara varamanna bekkinn en fór samt einusinni og snerti boltann einu sinni og liðið mitt var svo gott að það voru 4 þunnir af 7 hehe og við töpuðum öllum leikjunum okkar hehe
Svo er ég bara búin að gera hitt og þetta sem ég nenni ekki að skrifa um en það var samt allt gaman ;D
VOG 23. september - 22. október
Þú ert eilífðarstúdent. Ekki af því að þú veist ekki nóg, heldur af því þú ert svo forvitinn í hjartanu þínu. Þú eignast marga bekkjarfélaga og þið finnið verðug viðfangsefni.
Stjörnuspáin mín í dag
jájá nú getur mamma bara haldið áfram að grenja um það að það verði enginn stúdent í fjölskyldunni minni hehe
(Skrifaði þetta í gær)
Vorkenni þér ef þú last þetta allt þar sem þetta er nákvæmlega ekki um neitt hehe 
Hvað er það sem er líkt bæði fíl og fugli?