Heiðskýrar =)

21.04.2008 23:39:36 / ljoskuskapur

Sumarið að koma ? =)

Já sumarið er að koma :D

Ég hef ekkert að blogga um frekar en hina dagana ;)

Eeeen um helgina fór ég bara heim og dvaldist upp í sveit á föstudeginum og hluta á laugardeginum sem var notalegt og fínt, fór svo austur og hitti hana Guðrúnu mína um kvöldið og jú hitti Bryndísi og Sigurbjörgu svo smá líka sem var fínt :)
Svo á sunnudeginum var bara farið upp í sveit og svo farið upp á jökul í boði Bjarna Skarphéðins að leika sér á sleðum, eða vorum að hjálpa honum að færa þá en fengum dágóða útsýnisferð í leiðinni sem var bara gaman, blankalogn og sól =)
Svo um kvöldið skelltum við Guðrún okkur á Rocky Horror sýninguna og var hún bara mjööög skemmtileg :D mæli með henni sko.. ;)
þá var þessi ágæta helgi búin..

Svo bara 7 kennsludagar eftir í mínum skóla og þá fara að taka við próf sem verður bara fínt þegar því er lokið, tek 4 próf minni mig og er síðasta prófið 16 maí.. Sumarið alveg að fara að koma eða það vona ég og svo bara heim að vinna.. er líka að fara til Þýskalands í júní  í faðmi fjölskyldunnar sem á eftir að verða mikið stuð =)
og mín alveg að verða 18 ára þannig að þetta sumar á eflaust eftir að verða frábært eða það verður allt reynt til að það verði þannig ;)

Var einmitt líka að koma úr einum „sveitarúnti“ með Helga Berg fórum eitthvert til Krýsuvíkar og Grindavíkur eða eitthvað.. og auðvitað malavegir þar, en hvað annað.. og ég hélt að ég væri eiginlega hætt að vera bílhrædd eeen nei aldeilis ekki maður bara var með lífið í lúkunum allan tímann sem maður var á malarveginum .. :O(A) en maður fer kannski að þroskast og hætta þessari hræðslu 8-) *hóst* hehe..

En jæja hef þetta ekki lengra að sinni :)
-Heiða Vilborg

Sigurbjorg Karen skrifaði
mikið var að það kom blogg..en já það er kominn tími á að fjarlægja þessa bílveiki.. þá fattaru hvað það er gaman að fara svona sveitarúnta ;)
Guðrún skrifaði
Heiða bílhrædd... getur ekki verið;) hún sem er "aldrei" bílhrædd.
hólmar skrifaði
frekar erfitt að lesa þettas svona blátt á rauðu ´að mínu mati;)
Heiða Vilborg skrifaði
jéjé bílveiki hvað sko..! En alltaf gamna að fara sveitarúnti svo lengi sem er malbikað ;) Hólmar.. gugu ;)
Sólveig skrifaði
Ég varð sko hálf sjóveik á að lesa þessa bláu stafi þína ;) En já, er sammála með þessa bílhræðslu þína, þetta gengur ekki...
sigurbjörg Karen skrifaði
verð að vera sammála Hólmari og Sólveigu þessi litur gerir mann vittlausann..blandast ílla samann.. en hey komdu þér útaf malbikinu borgarbarn..
Heiða skrifaði
haha sjóveik.. þá vitið þið ekki hvernig er að vera sjóveik.. haha ég erbúin að kynnast því og þetta er ekki eins ;)
Bryndís Rós skrifaði
Gaman að sjá þig um síðustu helgi :)
-bílhræðsla er held ég eitthvað sem fer aldrei, allavega ekki hjá mér!
Heiða skrifaði
Skoo.. loksins einhver sammála mér ;)
sigurbjörg Karen skrifaði
Það er ekkert að marka Bryndísi ;)
Bryndís Rós skrifaði
hey sigurbjörg, ekkert svona!
sigurbjörgKaren skrifaði
hvaðahvaða...?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
RSS tengill
Dagsetning
23. febrúar 2012
Könnun
Er síðan að meika það?





Síðast inni
Ég var síðast inni þann 9 desember