Heiðskýrar =)

19.05.2008 22:56:31 / ljoskuskapur

Hún var séð sú gamla!

pissa-uti.jpg

Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka.

Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000 kr seðlar flugu úr pokanum endrum og eins.

Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni.

‘Góðan daginn væna mín’ sagði hann ‘hefur þú tekið eftir því að það eru 5000 kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?’

Konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna.

‘Æ þakka þér fyrir væni minn’ stundi í konunni ‘Ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp’

En þegar hún ætlar að leggja af stað að tína upp seðlana stöðvar lögregluþjónninn hana.

‘Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af fimm þúsund köllum? Varstu kannski að ræna banka?’

Gamla konan brosti.

‘Nei það gerði ég nú ekki en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi að þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja :

‘5000 kr. eða ég klippi hann af!’

‘Jahá.. þetta er áhugaverð hugmynd’ sagði lögregluþjóninn hugsi ‘..en hvað ertu með í hinum pokanum?’‘Það eru ekki allir sem borga…’



Bryndís Rós skrifaði
hehe góð :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
RSS tengill
Dagsetning
23. febrúar 2012
Könnun
Er síðan að meika það?





Síðast inni
Ég var síðast inni þann 9 desember